Hjá RD Lagnir tökum við að okkur pípulagnir og fjölbreytt verktakaverkefni fyrir heimili, fyrirtæki og húsfélög. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, snyrtilegan frágang og skýr samskipti — frá tilboði til afhendingar.
RD Lagnir starfar í Vestmannaeyjum, á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík og nágrenni), og býður upp á áreiðanlega þjónustu sem þú getur treyst.
RD Lagnir ehf. er stofnað af Roland Merkaj löggildum pípulagningameistara. RD Lagnir ehf. er framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í öllum almennum pípulögnum.
Fyrirtækið sér um almenna pípulagningaþjónustu hvort sem um er að ræða nýlagnir, viðhald, viðgerðir, snjóbræðslulagnir, skipta um dren og skólplagnir í eldri húsnæði eða fóðringar á skólplögnum.
pípulagnaþjónusta
RD Lagnir sinnir pípulögnum og verktakaverkefnum fyrir heimili, fyrirtæki og húsfélög á Suðurlandi, í Vestmannaeyjum og á höfuðborgarsvæðinu. Hér að neðan má sjá helstu þjónustuflokka okkar.
Traustur pípulagningaverktaki fyrir nýbyggingar af öllum stærðum – einbýlishús, fjölbýli og atvinnuhúsnæði. Við leggjum áherslu á gott samstarf og vandaða verkframvindu.
Alhliða viðhald á pípulögnum fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Hitagrindur, þrýstijöfnun, fóðrun og allt þar á milli.
Endurnýjun lagna í eldri húsnæði – skólplagnir, drenlagnir og hitagrindur. Vandað er til verka svo verkið endist til lengri tíma.
Endurnýjun skólplagna frá upphafi til enda. Hús byggð fyrir 1965 hafa oft sigið eða skemmst steypurör – við förum yfir verkefnið með þér.
Kjarnaborun fyrir nýjar lagnir, raf- og vatnslagnir. Göt frá 2,5 cm upp í 40 cm. Einnig steinsögun fyrir nýjar lagnir eða breytingar á rými.
Allar gerðir viðgerða á pípulögnum. Við veitum einnig ráðgjöf sem byggir á reynslu og höfum lager af algengum varahlutum fyrir skyndiviðgerðir.
Endilega hafðu samband og við finnum lausn og tíma fyrir þig. Verkið getur verið stórt eða smátt. Ef þess er óskað getum við gert þér tilboð í verk og gefið þér tímaáætlun.
Við notum vefkökur til að tryggja eðlilega virkni vefsins, greina umferð og birta viðeigandi auglýsingar. Með því að samþykkja allar kökur hjálparðu okkur að bæta þjónustuna.